1. Greiðsla og greiðsluform


Hægt er að greiða með greiðslukorti frá Visa, Mastercard & JCB. Þegar þú verslar skráir þú inn númer og gildistíma greiðslukortsins. Fjárhæðin gjaldfærist þann dag sem Gaxa.is tiltekur sem þann dag sem kaupin fara fram. Ef óskað er eftir að greiða með bankamillifærslu er varan ekki tekin saman fyrr en greiðsla hefur borist og á það við um öll greiðsluform. Öllum pöntunum er eytt ef greiðsla berst ekki innan 2ja virkra daga.

2. Vöruafhending


Allar vörur eru sendar með Íslandspóst næsta virka dag. Afhendingartími er 1 – 10 virkir dagar. Ef vara er ekki til getur afhending tafist um allt að 4 vikur en viðtakandi er látin vita í þeim tilfellum. Afhentingarskilmálar Íslandspóst gilda fyrir allar sendar vörur.

Þegar vara er sótt þá þarf að framvísa kvittun fyrir kaupum og greiðslukvittun ef um millifærslu er að ræða.

3. Skil eða vöruskipti


Almennur skilafrestur á vörum úr verslun gaxa.is eru 30 dagar, nema annað sé tekið fram. Hægt er að skila vöru gegn framvísun reiknings og fær viðkomandi inneignarnótu í vefverslun gaxa.is
Varan verður að vera í upprunalegum umbúðum, þær að vera heilar og óskemmdar.
Sendingarkostnaður sem verður til við skil á vöru er á ábyrgð kaupanda. Gaxa ehf áskilur sér rétt til að fara yfir vöru ef um galla er að ræða.

Eins árs ábyrgð er á rafhlöðum fyrir raf-rettuna. Ef um bilun sem rekja má til óeðlilegrar notkunar þá fellur ábyrgð úr gildi. Senda þarf rafhlöðu til okkar þar sem hún er skoðuð og mæld.

4. Persónulegar upplýsingar


Allar persónulegar upplýsingar um kaupanda vegna notkunar á vefsvæði Gaxa.is verður farið með í samræmi við lög og reglur um meðferð persónulegra upplýsinga eins og þær eru á hverjum tíma. Gaxa.is hefur hins vegar leyfi til að nýta eftirfarandi upplýsingar til markaðsrannsókna sem væntanlega leiða til betri þjónustu við kaupendur. Jafnframt áskilur seljandi sér rétt til að nýta þessar upplýsingar með samstarfsaðilum sínum í þeim tilgangi að bæta og til að bjóða fjölbreyttari þjónustu. Upplýsingar verða aftur á móti ekki látnar þriðja aðila í té.

5. Takmörkun ábyrgðar


Gaxa.is veitir aðgang að vefsvæði sínu eins og þann kann að vera á hverjum tíma og ábyrgist ekki að allar upplýsingar séu réttar, tæmandi eða réttilega uppfærðar eða að virkni vefsvæðisins sé ávallt í lagi. Upplýsingar um verð og birgðastöðu geta breyst án fyrirvara og eru því ekki skuldbindandi.

Gaxa.is ábyrgist ekki tjón sem kann að verða vegna notkunar á vefsvæði eða þjónustu tengdu netsvæðinu. Ábyrgðartakmörkunin nær til hvers kyns tjóns, meðal annars beint og óbeint tjón og afleitt tjón, missir gagna eða skemmdir á gögnum, missir hagnaðar eða tekna svo dæmi sé tekið.

Þegar um kaupanda sem ekki hefur náð 18ára aldri höfum við fullan rétt á að hafna sölunni fyrirfaralaust.